Q2 Report & Analysis

17 mars, 2022

Markaður fyrir íbúðarhúsnæði hefur verið óvenju líflegur upp á síðkastið.

183A8384-6

Vaxtalækkanir í kjölfar COVID-19 farsóttarinnar þrýstu upp eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. Samhliða aukinni eftirspurn hefur verð á íbúðarhúsnæði hækkað talsvert. Árshækkun á íbúðarhúsnæði nam tæplega 17% og hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði hefur einnig aukist til muna.

 

Farsóttin hafði talsverð áhrif á atvinnuhúsnæði. Eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði dróst saman í kjölfar farsóttarinnar, líklega vegna þeirrar óvissu sem skapaðist í kjölfar samkomutakmarkanna og annarra hamla til að lágmarka útbreiðslu COVID-19. Verð á skrifstofuhúsnæði sýnir jákvæða leitni upp á við á meðan verð á iðnaðarhúsnæði hefur lækkað. Markaðurinn fyrir atvinnuhúsnæði hefur hægt og rólega tekið við sér og eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði aukist það sem af er ári. Nýtingarhlutfall atvinnuhúsnæðis hefur hækkað um ríflega 1.5% á öðrum ársfjórðungi 2021.

 

Sækja skýrsluna

Sækja skýrsluna