Feb 11, 2021 1:35:00 PM
Croisette á Íslandi leigir út skrifstofur Booking.com í Nóatúni 17.
Croisette Real Estate Partner er framsæknasta og mest skapandi ráðgjafafyrirtæki í fasteignageiranum. Víðtækt tengslanet okkar hjálpar okkur að komast fljótt í samband við réttan hugsanlegan leigjanda. Við erum viðskiptasinnuð og látum okkur annt um auðmjúkt og skapandi fólk sem vill hjálpa okkur við að ná markmiðum okkar — sem eru að verða fremsta fasteignaráðgjafafyrirtæki í heiminum.
Croisette annast allt leiguferlið, allt frá markaðssetningu og skoðun til lokasamninga og undirritun samninga. Við markaðssetjum laust húsnæði þitt í nokkrum mismunandi farvegum eins og eigin vefsíðu okkar, forsendum auglýsingasíðum eins og Objektvision, í gegnum beina markaðssetningu og samfélagsmiðla.
Ef svo ólíklega skyldi vilja til að við getum ekki fundið leigjanda að húsnæði ykkar verðið þið ekki krafin um neitt gjald (nema annað hafi verið ákveðið). Við förum aðeins fram á greiðslu eftir að bindandi samningur hefur fyrir milligöngu okkar verið gerður við leigjanda. Allur upphafskostnaður, þ.e. vegna myndatöku, auglýsinga og skilta, er greiddur af Croisette.
Við tökum alltaf myndir með 360° myndavélum okkar og sendum þær til þriðja aðila sem gengur sem allra best frá þeim.
Croisette lítur á sérhvern viðskiptavin sem einstæðan og sérhvert verkefni sem einstætt. Við sérhönnum nálgun að verkefninu í samvinnu við viðskiptavininn til þess að tryggja að hann fái þá ráðgjöf sem hann vill og þarf.
… að við leigjum út allar tegundir húsnæðis og beinum markaðssetningu lauss húsæðis þíns að þeim fyrirtækjum sem viðkomandi húsnæði hentar best fyrir. Víðtækt tengslanet okkar og skrifstofur okkar ná yfir alla Skandinavíu.